|
Upplýsingar um ferðina okkar:D
|
23.03.2007 22:16:06 / magnus20
jæja ætli maður skelli ekki inn svona eins og einni færslu inná
þetta blogg.
þannig er mál með vexti að núna er ég staddur í Flórída, nánar
tiltekið á Daytona Beach. ákvað eftir mikið spjall við Evert að
skella mér í heimsókn til hans og kanski sleikja sólina smá.
þetta byrjaði vel því ég vissi ekki heimilisfangið hjá kallinum
á flugvellinum þegar ég var að bóka mig inn og stelpan sagðist ekki
geta bókað mig nema með heimilisfangi. enginn nettengd tölva á
svæðinu og ekki komst ég í síma svo stúlkan var svo elskuleg að
lána mér heimilisfang einhverstaðar í Iowa. þegar ég svo er að
fylla út visa miðan í vélinni segja flugfreyjurnar mér það að ef ég
get ekki gert grein fyrir því hvernig ég ætli að komast þangað og
ef þeir komist nú að því að ég sé ekki að fara þangað er næsta víst
að ég verði kyrrsettur á vellinum og sendur heim með næstu vél. þær
láta mig fá nafnið á hótelinu sem þær ætla að gista á svo ég skrifa
það og kemst heill í gegn.
er ekki meistari Evert með íslenska fána á lofti að taka á móti
mér keyrum ég, Evert og Aron sambýlismaðurinn hans í þessa líka
fínu íbúð sem þeir búa í hérna nálægt flugskólanum sem þeir eru í.
er farið snemma í háttinn enda þreyttur eftir langa vöku og
ferð.
á þriðjudaginn fara þeir félagar í skólan og ég tek mér rölt
hérna um nágrenið. við reynum svo að fá okkur bílaleigubíl og
finnum þennan fína kagga hjá Budget á skít á kanil. en hepninn er
með okkur og við fáum hann ekki því Evert er ekki búin að búa hérna
nógu lengi og því ekki kominn með borgunartraust. við semsagt gátum
ekki borgað bílinn sem kostaði 150 dollara og 150 dollara í viðbót
í tryggingu með debetkortinu hans en inn a því voru rúmir 4000
dollarar því hann er ekki með þetta borgunartraust.
jæja félagi hans reddar okkur bíl á annari bílaleigu daginn
eftir en við eyðum restinni í að kíkja á ströndina með skólafélögum
hans og endum svo um kvöldið á þessari fínu hamborgara búllu.
miðvikudagur þá elda ég spaghetti bolognes sem leit ekkert svo
vel út en smakkaðist hreint ágætlega. ég rúntaði eitthvað um á
meðan Evert var í skólanum og skoðaði bæinn. sótti svo Evert og við
tókum viltrúnt en komumst á heilu og höldnu heim. farið var í
puplix og verslað og svo grillað úti við sundlaug. aldrei ætlaði að
slökkna í kolunum en tókst í 8 tilraun. skeltum á grillið og farið
í pottinn. eftir dýrindis kjúkling og með því fóru bananarnir með
þessu líka fína súkkulaði á grillið já við fórum líka í
skoðunarferð um skólan hans um daginn.
svo í gær var stefnan tekinn á sundlaugarbakkan og legið í
sólinni. mér fannst ég nú samt vera að brenna upp á tímabili og
svitnaði frekar mikið útaf hita svo ég lét þetta nægja um stund.
náði ekki að bera á blett á bakinu svo ég brann smá. rúnturinn
tekinn og skoðað í búðir og rölt um. svo var stefnan tekinn aftur á
puplix um kvöldið og keypt í matinn, núna voru nautasteikur fyrir
valinu og aftur varð grillið við laugina eldunarstaður okkar
bræðra. (þótt við séum ekkert skyldir það var bara stelpa í
skólanum sem taldi svo vera, við værum svo líkir
vorum með marsmellows í þetta skiptið og Evert var eitthvað að
sveifla sínum og endaði hann á hendinni á mér, svo ég er með
brunasár á vinstri handlegg. hehe. maturinn hreint út sagt frábær
og fórum við sáttir og glaðir að sofa.
skutlaði Evert í skólann þar sem hann er í prófi núna og klárar
klukkan 7. búin að liggja á sundlaugarbakkanum og rúnta um og skoða
fólk, hluti og staði.
gleymdi víst að skrifa það að ég var stoppaður af löggunni á
ströndinn fyrir of hraðan akstur. var á mældum 22 mílum en
leyfilegur hraði er 10 mílur. svo var Evert skráður fyrir bílnum og
það er víst criminal offence hérna í flórída ef einhver annar
keyrir bílinn. en við sluppum með skrekkinn þegar kallinn var búin
að humma yfir þessu í sirka korter.
en nóg af þessu ég er farinn að kaupa hitt og þetta og taka
röltið hérna eitthvað um.
kveðja Magnús í Ameríku
»
10.01.2007 16:02:38 / anna20
Hvað haldiði að hafi komið fyrir mig... martröð hvers kvenmanns
nánast held ég bara... Ég er komin með fílapensil undir
VÖRINNI!!! Ekki á hökunni heldur beint undir neðri vörinni.. Tók ég
eftir þessu einn morguninn um helgina og fékk ég sjokk.. En sem
betur fer er þetta svona upclose and personal sýn svo að það er
ekki eins og að kúnnarnir sjá hann og segja svo OJ með grettu á
andlitunu... Stórfurðulegur staður annars... En ég er að
jafna mig á þessu,tíminn læknar öll sár sem betur fer.
En nóg um það.. Er í fríi um helgina og ætlaði norður en ákv.
svo að fara næstu helgi og blóta þorra í hreppi semnefndur er eftir
honum Lýtingi (eða svo gott sem) En annars er ég í deyjandi þörf að
gera eitthvað skemmtó og skondið um helgina.. Helst fara úr
bænum og taka rúntinn á þessu eða bara panta gistingu hjá
einhverjum og tralla pínu, það er nú einu sinni snjór svo að
möguleikarnir eru sko margir t.d fara á bretti á bláfjöllum, búa
til snjókarl, kíkja í kakó á búðum, skoða Gullfoss og Geysi
eða bara eitthvað... Ef einhver er geim með mér í ævintýraþrá um
helgina, endilega hóið í mig og gerum eitthvað gaman...saman..
hehehe
Love U chicos, hmmmm
»
02.01.2007 19:06:55 / anna20
Gleðilegt ár gott fólk.. vona að þið hafið notið hins gamla og
áramótunum..því það gerði ég... 'eg veit ekki alveg en það er
einhver skylda að líta alltaf um öxl á svona tímamótum og spá hvort
maður gerði eitthvað viturlegt á árinu eða eyddi því öllu kannski í
vitleysu og volæði!! Ekki´vil eg nú meina það að ég hafi eytt
árinu í svoleiðis en auðvitað stendur ferðin mín uppúr öllu og get
ég ekki farið að velja ákv. atburði.. enda hafið þið engan áhuga á
að lesa það hér (Ef svo er getið þið farið í gamlar færslur hér til
hliðar og grúskað upp einhverjar sögur) Svo er það annað, maður er
orðin árinu eldri.. Er að verða 25 á þessu nýja ári.. Þá koma
vangaveltur um hvort maður sé nú ekki orðin of "gamall" til að gera
ákv. hluti og komin á aldur til að gera aðra hluti, sem
tengjast framtíðinni.. Hrmph eins og hverjum sé ekki sama þó
ekki er komin kall, börn, bíll, íbúð eða háskólagráða í pakkan
minn.. Nema fjarskyldum ættingjum sem bíða spenntir eftir
breytingum á næsta ættarmóti, "Umhyggjusömum" vinkonum sem kynna
mann fyrir vinum kærastanna, konunum í vinnunni sem eiga uppkomin
börn og vilja benda á hvað þeirra börn gerðu og hvað væri
nú gott að gera og læra í framtíðinni. Takk fyrir
og ég dáist að vinum mínum sem eiga börn, maka, íbúð, bíll eða
háskólagráðu. Þetta kemur allt saman en fyrst eru aðrir
hlutir sem ganga fyrir. Svo þó að árin nálgast, þá held ég að ég
sem og aðrir í stöðu minni, hafi nægan tíma, og vilja
halda áfram að líta um öxl og rifja upp frábærar sögur &
stndir sem ég t.d hef upplifað um allan heim með yndislegu en
á stundum, skrítnu, fólki..
»
07.12.2006 20:42:05 / anna20
Jæja jæja jæja hmm það er nú orðið eitthvað langt síðan að ég
tjáði mig hérna síðast svo að það var nú komin tími til að setjast
niður og líta aðeins aftur í tímann.. Annars hefur nú ekki mikið
gerst sl. mánuði, allavega ekkert markvert.. ok lítum aðeins yfir
sl. vikur svona snögglega..
- Skrapp norður í rólegheitin í skagafjörðin þar sem var
drukkið, dansað, snorklað og að endingu gist í fangaklefa!!
- Farin að vinna á kofanum, veit ekki why mér datt þaðí hug þar
sem ég umgengst tinnu og hennar lið meira en góðu hófi gegnir...
DJÓK.. Tinna þú ert gull þar sem þú leyfðir mér nú að syngja danska
lagið háróma og falsk þarna eitt kvöldið.
- Búin að fá mér nokkrum sinnum í tánna á fimtudögum með henni
vöggu og fleirum, en hún drekkur kaffi en ég breyti vatni í vín..
eða bjór.. Það mun breytast eftir prófin.
- Spila tvisvar scrabble... og ég vann í fyrra skiptið, hehehe..
Seinna skiptið var drukkið og breskt!! - Vatnsmála 5 geggjuð flott
jólakort -eða þannig....
- Fara til London og hitta vini mína frá S-Ameríku og drekka
ógrynni af bjór og skoða þá marga pöbbanna..
- Versla mér föt þrátt fyrir að eiga engan pening... Guð blessi
landsbankann á króknum og VISA
- Búin að versla allar jólagjafir nema 1 og hálfa... nb. af 10
stk!! Nokkuð gott nokkuð gott
- Rífa kjaft við lækna um allan bæ og heimta almennilegt dóp
útaf flensunni minni.. sem er enn slæm eftir 5 vikur..ARRRG
- Var boðin út á deit sem ég afþakkaði pent þrátt fyrir mikil
mótmæli kofafélaga..
- Eiga í miklum samræðum við vinkonuhópinn um börn, útvíkkanir,
hunda, hundanöfn, barnanöfn, giftingar, íbúðakaup og ALLT sem
fylgir því að vera í sambandi, m.a.s brúðkaupshárgreiðslur....
Jeeminn Hvað er eiginlega að!!!
Jamm svo gott fólk vildu þið ekki óska að þið hefðuð verið í
mínum sporum sl. vikur??
Annars verð ég nú að koma með smá meiri komment um London.. en
þetta er eiginlega allt svona sögur "had to be there" svo að ég er
ekki alveg viss um að þær eigi að ljóstrast hérna upp.. bjóðið mér
í kaffi og eitthvað mun kannski skýrast...
þangað til á nýju ári.. eða kannski fyrr.. 'ut með jólaköttin
því kvikindið er loðið eins og ljón..... kv. Ana Kat
»
12.10.2006 18:04:48 / anna20
Blessaðir landsmenn
Jæja það hefur nú ekki margt drifið á mína daga nýlega svo að
þetta gengur bara... já gengur bara.. áskotnaðist nú slatti af
léttvíni í gær svo það kemur ekki mikið í budduna þennan mánuðinn
ef maður vill liggja í mareneringu.. jaa þessi marenering á
örugglega eftir að duga eitthvað fram að jólum.. Annars á mar nú
afmæli bráðum og AIRWAVES er að hefjast.. Verð nú að viðurkenna það
að ég hef ekki enn keypt mér miða EEnn þar sem afmælið mitt
nálgast óðum og er nú bara daginn fyrir startið á AIRWAVES er þá
ekki í lagi að krossa fingur og vona að einhverjir af öllum þessum
lýð se maður þekki taki sig saman og gefi manni bara miðann!!
Annað svo.... J'OLIN eru að nálgast.. sko ég er ekki ekki ein af
þeim sem skreyta allt og kaupi ´J'OLagjafir í byrjun okt.. Heldur
sko liggur þannig í því að þar sem áðurnefnt afmæli mitt er í okt
og allir byrja að TALA um J'OLaskreytingar og svoleiðis hluti þegar
haustið tekur.. Þá sameina ég alltaf afmælislistann minn og
J'OLagjafalistann.. og þar sem ég er ekki vön að fá marga
afmælispakka lendir þetta nú flest allt á J'OLagjafalistanum, svo
að í gegnum tíðina og eftir fáa afmælispakka hefur mér bara lærst
það að setja minn lista bara á einn list J'OLagjafalistann...
Hann er nú ekkert orðinn langur þetta árið.. gallabuxur, nærföt og
stígvel.. Það er nú ekki lengra að sinni en ég hef svo sem nægjan
tíma til að týna til á þennan lista.. Svo þoli ég ekki þegar fólk
gefur manni hluti sem maður hefur ekkert skrifað niður.. ok EKKI
vera vanþakklát um J'OLin krakkar en hafa ekki allir fengið
eitthvað þvílíka eitthvað og maður bíður bara þar til einhver á
afmæli eða bara á næstu JÓLum til að pakka því inn og gefa til
einhvers annars sem hefur meira við það að gera heldur en maður
sjálfur.. Svo getur maður auðvitað fengið eitthvað sem slær
mann svo alveg útaf laginu og maður fattaði bara ekki að setja
þetta á listann því að þetta var svo crazy & góð gjöf....
En í burtu með leiðinlegu og óþarfa pakkanna sem maður getur ekki
skipt eða gefið til baka seinna meir.. Hvers á maður að gjalda á
svoleiðis deigi, hvort sem það er á J'OLunum, afmælinu,
útskriftinni, giftingunni o.sfrv.
JAAA ég bara spyr??? Öll hljótum við nú einhvertímann að
hafa lent í þessu þó svo að ekkert komi upp í hugann í mómentinu..
Hvað með hin ykkar þarna úti???
»
02.10.2006 16:31:44 / anna20
Fokk Þetta var erfitt ferðalag í gær sem ég fór í ... Bíddu wæ?? Jú
auðvitað skellti maður sér norður á Laufskálaréttir á föstud..
Drakk nokkra bjóra.. labbaði hringinn um réttirnar eins og hver
annar, komst 1 &1/2 hring þetta árið.. Dansaði uppá bílþaki..
Át fullt af hákarli..jammm Fór á ball með Geira & von.. Sleit
skónum á dansgólfinu.. hélt ég væri búin að ná mér í strák.. kom í
ljós að hann helt að ég væri Ragna systir!! Endaði ein heima.. í
pabba holu.. Kiddi fékk mitt herbergi því hann fékk næturgest.. Var
að deyja frá því ég vaknaði í gærmorgun og fór að sofa í
gærkvöldi.. Gerði áfengiseitranir test hjá unga fólkinu..sem átti
enn til bjór eftir ballið.. Ekki gott að blanda saman g&t við
tópas & hvítan gajol.. Ældi á leiðinni suður í borgarfirðinum..
En það var ok.. mamma gamla gaf mér nokkra poka áður en við lögðum
af stað.. Better to be safe than sorry.. Takk mamma Er öll að
braggast núna á þessum fyrsta degi vinnuvikunnar.. En helgin var
bara á heildina litið nokkuð góð.. Þekkti ekki mörg andlit en þð
var svo sem ok... Jæja best að fara taka upp úr töskunum og svona..
Adios amigos
»
21.09.2006 18:29:50 / anna20
Jæja Afríka er víst ekki lengur í myndinni því ég er komin með
vinnu.. Afríka verður bara að bíða þar til 2008...
Annars gengur bara allt sinn venjulega daggang, fyrir utan það
að það er lykt inní herberginu mínu sem ég losna ekki við!! Fyrst
hélt ég að þetta væri nú kannski af einhverjum skópörunum mínum en
svo stóðst það nú ekki alveg þar sem ég var ekki með neina skó á
svæðinu.. þá hélt ég ólyktin kæmi frá sokkapari sem ég
hefði gleymt að þvo.. það stóðst ekki heldur því allt var hreint
þegar ég fór yfir dótið um daginn.. Núna er búið að fá sér
ilmhöfrung svona eins og er sett í bíla.. það gengur ekki, ólyktin
yfirgnæfir það og ekki finnst nein lykt af blessuðum höfrungnum..
Svo það var keypt ilmkerti og gengur það ekki heldur.. það er þó
bót í máli að lyktin venst eftir c.a 10 mín
En hún venst samt ekki í svefni því þetta er það fyrsta
sem ég vakna við núna á morgnanna!! Óskiljanlegu lyktina sem
vill bara ekki fara.. Svo það var brugðið á það ráð að tala við
leigusalann og vissi hann bara um hvað ég væri að tala og er
þetta þá líklega bara lyktin af efninu sem notað var þegar teppið
var djúphreinsað.. og e.t.v hefur eitthvað smá slest niður á
gólfið bak við hurðina!! Og hvað á að gera í málinu?? Jæja
vonandi kemur þetta í ljós á morgun því lyktina vil ég
burt.. Hugsið ykkur ef sú aðstæða kæmi upp að ég kæmi nú
ekki ein heim eitt kveldið og þegar hurðin yrði opnuð myndi
karlpeningurinn rjúka á dyr vegna ólyktarinnar sem kæmi á móti
honum.. Ekki gott það.. Annars er lyktin sem betur fer ekki
smitandi og hefur ekki fundist neinn illur þefur af fötunum
mínum.. Sem betur fer segir maður bara því annars
væri maður víst komin aftur á götuna!! lyktin út og
karlmanninn inn... Heyr heyr..
Og ef þið vitið um eitthvað gott & gamalt húsráð til að
losna við svona ólykt þá eru allar uppástungur
kærkomnar...
Kveð ykkur að sinni skunkarnir mínir....
p.s Hverjir ætla á airwaves í ár, og eru e.t.v búnir að versla
sér miða??
»
12.09.2006 13:45:23 / anna20
Arrg hvað lífið og tilveran geta verið þreytandi þessa
daganna..
Nú af hverju spyr maður sig kannski??
Atvinnulaus.. eða finn ekki Réttu vinnuna eða réttu launin!!
Ekki gott.. ENN jaa er búin að fá vinnu en kaupið er bara
engan veginn nógu gott en held samt að starfið sé nokkuð
áhugavert.. Er samt að fara í annað viðtal á morgun en held samt að
það sé ekki eins áhugavert en launin þó betri.. Hva á marr
eiginlega að gera?? Hata svona vangaveltur..
En útí aðra sálma.. Ég verð loksins komin með mitt eigið athvarf
um helgina.. fæ lyklanna afhenta á föstud. að Garðastrætinu.. gaman
gaman svo það er bara að skella sér norður á morgun og taka mitt
hafurtask svo ég get farið að breiða úr mér... loksins...
Er búin að vera sofandi í sófanum já systkinum mínum hérna til
skiptis svo að þetta verður nú nokkuð kærkomið.. Annars vantar mig
bara rúm... Auglýsi hér með ef einhver veit eitthvað..
Annars er maður nú búin að vera duglegur að skoða
atvinnuauglýsingarnar hérna sl. vikur og rakst ég á eitt áhugavert
í einu blaðinu... fara til Afríku.. í heildina þá tæki allt þetta
prógramm 14 mánuði og verð ég að segja að þetta var mjög svo
áhugavert.. Bara stinga af frá öllu þessu eða réttara sagt slá
þessu öllu á frest og koma svo bara aftur eftir rúmt ár og vera í
sömu sporunum en bara árinu eldri og e.t.v. vitrari.. Eða hvað..
held að auglýsingin sé enn í blaðinu.. á maður bara ekki að slá
til??
»
31.08.2006 04:45:17 / anna20
ok gott fólk...
ÉG HATA TÚRVERKI.........!!!!!!!!!!
oK nóg um það en allaveg þá ELSKA ÉG KOJUFYLLERÝ!!!
Fyrir þau ykkar sem ekki vita þá er kojufyllerý drykkja með einni
eða jafnvel tveimur manneskjum, kojufyllerý telst líka þegar setið
er einn heima að drekka en svo sorgleg er ég nú ekki orðin
ENN...
Er komin aftur á krókinn, í bili, en núna er maður hvað???
atvinnulaus aumingi eða eins og ég vil segja að maður sé nú bara á
milli starfa.. er að bíða eftir svari frá einu fyrirtækinu svo það
er bara verið að krossleggja fingur hérna og ef þið eruð vinir
mínir eða þykið e-ð vænt um gerið þið hið sama 
Já ævintýrið á Laugarvatni er nú bara búið og nú tekur e-ð nýtt
ævintýri við.. lenti ég á smá stelpukvöldi um dainn og svo virðist
sem flest allir sem ég þekki standa nú einhverium tímamaótum... ný
vinna, flutningar, fjölganir o.s.frv... Er það bara gott enda árið
2006 komið langleiðis og maður var að halda uppá 10 ára
fermingarafmæli um daginn eða jaaaa bara núna í vor... Til Hamingu
Öll Systkini Mín.. þó svo að ég hafi ekki fermst með 98% ykkar þá
óska ég ykkur til hamingju með þennan staðfestingar-skírnar
áfanga
halló 10 FUCKINGS ár... Hvað er svo búið að gerast núna sl. 10ár
hjÁ manni.. eitthvað búið að gerast?? jújú brjóstin búin að stækka,
væntanlega fleiri kúrufélagar, krabbameinskoðunun er
byrjuð,barneignir, áfengismeðferðir, söknuður, hjónabönd,
breytingarskeiðið.... hhhaaaaaaaa!!??!! Látum þetta nú ekki
ganga svo langt!!
Já kojufyllerý.. ég kveð ykkur að sinni með kveðju úr
víðigrundinni nr. 16. neðstu hæð til hægri ef þið hin sem eruð ekki
króksarar og vitið ekki hvar Hansi býr!! Nei djók..
Elska ykkur eins og alltaf snúllurnar mínar og gleðilegt
breytingarár.. við eigum það öll.. bara að líta pínu aðeins í eigin
barm og gefa okkur smá tíma til að muna, sakna, skilja &
varðveita allt sem á daga okkar allra hefur drifið sl. daga,
mánuði, ár.....
farið vel með ykkur, ekki gera neitt rugl & keyrið
varlega.......... einsog ég
kv. ankagu
»
14.08.2006 15:55:24 / anna20
jamm & já gott landsfólk....
Nú eru afstaðnar 2 helgar sem voru nú bara nokkuð nettar í
sitthvoru lagi... versló hmmm.. staðsetning-Laugarvatn/Flúðir.. hmm
samasem vinna & drykkja.. þarf nokkuð að segja meira!! júú fékk
frí á sunnudeiginum og mútter kom og náði í mig og á slaginu 3 var
lagt af stað á ættar/fjölskyldumót þar sem var djamm að fram á
mánud.morgun.. þar gerðist nú sitt lítið af hverju. nú hvað? já
Grafarbakkinn (mitt lið) vann traktorstorfæruna.. hreppadruslurnar
(líka mitt lið) vann leðju/fótboltann... mamma stal veskinu mínu og
síma og neyddist ég til að hringja í annarlegu ástandi á stöðina
til að spyrja pabba um nr. hjá mömmu því það var stolið úr minninu
mínu vegna ölvunar...hmmm.. en minnið fannst svo og hann Albert
frændi þurfti að borga pizzuna mína.. bauð hann mér vinu á ísafirði
í vetur að smíða.. mér líkaði ekki launin sem hann bauð þannig að
hann ákv. að bæta við einum bjór á hvern vinnudag líka.. Er að
hugsa málið... Fór í sund.. borgaði mig inn þetta árið!! lenti í
myndatöku´því það var/er 10 ára fermingarammæli hjá okkur 5.. sumir
hafa nú stækkað frá síðust myndatöku aðrir ekki, ég var allavega
ekki lengur hæst en er nú kannski enn stærst.. þið skiljið.. ef
ekki njótið þá augnabliksins... kenndi frænda mínum að hoppa
oní polla.. endaði mjog blaut & drullug eftir þá kennslu..
söng.. söng meira... og tók svo einsöng á sunnudeiginum!!!
kláraði nú ekki áfengið mitt svo þetta er nú kannski allt bara í
besta lagi.....
Vikan og restin...
Arrg.... Vinna og vinna meira og svo bara pínu bjór eða á
þriðjud. miðv. en á fimtud. þá var farið í rvk og fenginn sér bjór
þar enn nb aðeins einn... varð að komast í burtu frá þessari
hommadrama sem er í gangi hér á laugarvatni og kom mér svo í burtu
úr rvk aftur hingað á laugardag.. til þess að vera örugg um að
rekast ekki á neina hommadrama á gay pride!! HEY ekki
misskilja mig, mér finnst sammó fólk mjög fínt og kúl.. en að lenda
á trúnó dag eftir dag við homma er bara að taka pínu á, pínu
mikið.. endilega ef þið hafið eitthvað útá þetta að setja bíð ég
ykkur hér með í heimsókn á laugarvatn til að kynna ykkur fyrir
hommunum í næsta húsi.. en ég er bara að tala um 2 gauka af 5
hérna en þeir eru gamalt kærustupar sem hættu saman fyrir 2 vikum
eða svo.. þetta er skondinn vinnustaður.. 7 starfsmenn, 1 gk kvk, 1
gk kk, hin eru svo sammó.. En jæja nóg um þetta, ég verð bara
þunglynd.. En já rvk.. þar var chillað, borðað, drukknir 2
bjórar, háskólabíó, kofinn, hressó, brennslan, laugarvegurinn, Oni,
kron, rosso promodoro, american style & síðast en ekki
síst Orkan á smiðjuveginum..
Svona er líf mitt í dag, er farin að plokka á mér
augabrúnirnar... Reyna að gera mig sætari en sætust... chao..
anka
p.s hvað varð um reynslusögurnar sem ég spurði um í síðasta
pistli?? Ég veit að ekkert ykkar er svo heilagt eða hvað??!!??
mohahahahha
pps. Steinunn Anna Er ljórhærð stúlka í FSU, á lausu en vinnur á
hróa og fær bílpróf í september, man ekki hvenær.. sorry
skvís
»
03.08.2006 14:20:30 / anna20
Já gott fólk, hér eru niðurstöðurnar úr
síðustu könnun, svona eins og ég var búin að lofa
»
28.07.2006 13:17:51 / anna20
halló halló landsmenn nær & fjær...
þá er mín komin á Laugarvatn og er að reyna ad glugga í
námsbækurnar á milli vakta... sem gengur ekkert of
vel!! ég meina er ekki bara annad hvort að duga eða
drepast í þessum komandi prófum.. sem btw nálgast alltof fljótt..
sem þýðir að sumarið sé senn á enda og nánast engin sól búin að
vera til staðar síðan maður steig aftur fæti á þennan blessaða
ísklump á miðju atlantshafi í norðri..
Annars er búið að bjóða mér í partý í London þann 11.ágúst og
það væri nú gaman að kíkja en tar sem ég á að fara í próf tann 17.
& ég má ekki missa úr vinnunni + ég á ekki pening þá verður
ekki farið í tetta partý.. hefði samt geta orðið mjög gaman..
gamlir ferðafélagar frá því í Venezuela og Brazil
En talandi um party, tá er ég búin ad fara í nokkur..
eda 3 sl. 2 helgar.. Á hellissandi var sko djammað fram
undir morgun báða morgna og verð ég bara að segja það að þetta
lið kann nú sko alveg ad halda partý og er líka pínu klikk..
allavega sumir, nefni engin nöfn.. en besta fólk upp til hópa..
annars hefði ég alveg örugglega ekki haldið þetta út sl sumar
eða haustið árið tar áður... en svo ég skipti aðeins um
umræðuefni, hvað er málið með heimilisofbeldi!!! ok auðvitad vitum
við öll að tad eru bara aumingjar sem berja konurnar sínar en hvað
með kellurnar sem berja kallana sína!! tad finnst mér nefnilega
alveg stórkostlegt.. tá ekki á góðan hátt heldur bara svona
stórkostlega skrítid.. ef kona er barin af manni sínum reynir hún
stundum að verja sig sem endar stundum þannig ad kallinn endar
á slysó med stungusár eda jafnvel dauður (allavega í hollywood
myndunum) og allir vorkenna konunni og hún er ekki talin sakhæf tví
tetta var sjálfsvörn.. en ef kall væri ad verjast gegn konu sinni
og myndi kýla á móti eða annað slíkt yrði hann nú líklega
kærður fyrir líkamsárás.. hvað haldið þið?? því eins og
flestir vita erum við kvenfólkið oft pínu kröfuharðar og ákveðnar
og göngum við greinilega mislangt til ad fá okkar framgegnt, en
heimilisofbeldi... er það bara ekki málið, kúgum karlinn og brjótum
hann niður.. jaa þad er ekki mín skoðun, en hvað veit ég annars,
ekki hef ég neinn kall til ad stjórna nema kannski bræður mína
og ekki get ég snúið þá niður.. þó ég vildi óska að ég
gæti
En já talandi um party herna áðan tá var party sl.
laugard.kvöld í bænum og skemmti ég mér alveg konunglega.. En
það sem meira var, þá hitti ég fólk á götum úti semég hef
ekki hitt í nokkur ár!! hitti einn gamlan vin sem ég hef ekki séð
síðan ég var 18.. Og þad var spjallað og faðmast.. svo hitti ég á
nokkra gamla lúxara vini sem ég hef ekki séð í 3-4 ár.. og var það
alveg stórkostlegt.. hitti svo auðvitað á vini sem ég hef ekki enn
haft tíma til að hitta síðan heim var komið.. þetta er það
stórkostlega við vinina mína, maður þarf ekkert að halda reglulegu
sambandi við alla, en þegar ,aður loks hittir þá, þá er það bara
eins og það hafi síðast gerst í gær.... Svo var bara skrölt
heim um kl.6, berfætt & með bros á
vör & hringt var
á pizzu.. það sem kórónaði svo allt var
þad að þegar vaknað var á sunnudaginn var enginn þynnka í gangi,
viti menn, kraftaverk gerast enn
jæa best að fara læra, er að fara vinna eftir 1,5 klst!!
hvað er annars planið hjá landsmönnum að gera um versló?? ath
ný könnun, niðurstöður hinnar gömlu birtast seinna.. lofa...
faðmlag og koss á kinn, akg
»
14.07.2006 13:59:21 / anna20
jamm ´gott fólk... nu er bara verid ad bída eftir ad lidid komi
og pikki mig upp svo vid getum skrolt vestur á Hellissand á
Sandaragledi
tad verdur sko tjúttad & slitid skónum um helgina get eg
sagt ykkur.. held samt tad verdi rennblautt en eg er m/allar græjur
svo ég haldist nú turr og svo er tad nú kostur ad ekki verdur madur
í tjaldi..
Annars er ég nu buin ad koma ansi morgu í verk sl. daga.. komin
med vinnu. búin ad slá gardinn, eda já 2/3 af honum.. rafmagnsúran
nádi ekki lengra sko!! Buinad sortera fotin mín.. eda tad
hélt tangad til í morgun.. fór ad pakka og var í leit ad hinu &
tessu. ta uppgotvadi ég ad hún elskulega módir mín er búin ad troda
fotunum mínum í allar skúffur og hillur í herberginu mínu.. Er
kannski ekki búin ad taka nógu mikid til.. en tad fyllti allavega
heilan ruslapoka flíkur sem ´hafa ekki litid dagsins ljos í
LANGAN tíma:/ hehe Heida naut nú einhvers góds af tví og já
Sylvía held tad leynist nu einhverjir bolir tarna sem tu getur
fengid en ef tú vilt einhverjara buxur tá tarftu nú ad stytta taer
heilan helling stubburinn minn..
Svo er bara ad fara skella sér á Laugarvatn ad vinna í naestu
viku og tarf ég ad vera búin ad taema rúmid mitt fyrir tann tíma en
nú er tad hladid fotum og dóti.. Er búin ad vera sofa í ruminu hans
Kidda sl. daga og já tad er party í baenum tann 22. julí..
stadsetning & tími koma sídar.. takid bara kvoldid frá gott
fólk..
jaeja verd ad fara koma mér.. ríkid & bónus í Borgarnesi..
hér kem ég
baejó... akg
»
10.07.2006 12:43:03 / anna20
Jamm nú er lidin vika frá tví a madur kom á klakann og beint i
rigningu sem virdist ekki aetla ad haetta ég var nú ekkert med
neitt plan sem átti ad gerast fyrstu daganna, annad en Masi sem
aetladi sko ad borda heilann helling hjá ommu sinn, frænku sinni, a
Nordica og i bakaríinu!! Verdi tér ad godu.... Ég hins vegar ákv.
tad ad tegar ég kaemi nordur yrdu nú ad vera sykradar kartoflur á
bodstólnum hjá mommu & pabba.. sem ég fekk Annars er nú ekki
mikid búid ad gerast og er ég adallega buin ad vera sofandi!!
En eftirfarandi er mín nú búin ad afreka sídan komid var heim..
-
- Hitti stelpurnar & frétti nýjasta slúdrid..
- Fór á kojufyllery m/ henni Sylvíu og kom mér heim rétt ádur en
haldid var a krókinn.. -
- Hitti Ömmu & afa, smellti kossi a tau.. -
- kanna naeturlífid á króknum, sem var bara tad sama og
venjulega.. bjóst nú ekki vid odru en skemmti mér nu samt alveg
konunglega og m.a.s. Heida var ad ad tjútta..
jamm svo eru tad hlutirnir sem ég tarf ad gera en hef ekki enn
komid í verk!!
- Ganga frá toskunum mínum og allt tad sem í teim er.. fara med
fot sem eru ekki í notkun lengur til Rauda krossins!! Og sortera
alla minjagripina & gjafirnar sem keyptar voru.. úff tekur mig
lámark viku ad ganga frá tessu ollu...
- Slá grasid í kringum húsid.. helst í dag tví tad er loks haett
ad rigna!! -
- Fara í heimsókn til heidu & sjá kettlingana & updeita
slúdrid
-
- hafa samband vid restina af lidinu sem ég hef ekki hringt í enn
og fara í heimsókn!! - Fara á Sandaragledina á Hellissandi naestu
helgi og redda gistingu -
- Finna vinnu, einhverstadar sem gefur vel af sér og er husnaedi
innifalid.. Kárahnjúkar, Reydarfjordur & sjómennska er í
umrædunni.. -
- Senda email á nokkra vini.. Er búin ad ætla ad gera tad i 2
vikur en enn hef ekki"fundid tíma" -
- Finna út hvernig eg hendi lagalistanum inná ipodinn minn..
-
- setja myndir inná tolvuna og e.t.v inná netid ef ég kann
tad..
já gott fólk má ekki vera ad tessu pikki núna, frekar en fyrri
daginn tví jú eg er bara búin ad vera sofandi sl. viku og tarf ad
fara koma mer ad verki.. Tangad til naest gott fólk, hafid tad gott
og naest er eg heyri í ykkur verd ég búin ad med eitthvad á
listanum mínum... Lofa
hehehe... chao.. annakata
»
04.07.2006 19:02:01 / anna20
Jáhá domur mínar & herrrar..
Tá er madur komin heim og íslenskt lyklabord tekur aftur vid...
Allavega tá hef ég nú ætlad mér ad segja ykkur frá sídustu
dogunum, Galapagos og tessari ágaetu leid heim frá Euador til
Íslands!! Svo tetta á eftir ad verda ágaetis pistill, allavega
lengdin á honum Setjid ykkur tví í stellingar....
Galapagos....
tar var okkur ruggad í svefn á hverju kvoldi, mjog kósí..
Snorkludum vid á hverjum degi og hef ég nú sed flestalla fiskanna
sem eru í myndinni Finding Nemo, nema Nemo sjálfan, t.e
trúdfiskinn.. Var ég naestum étinn af hákarli en ég bardist vid
hann, hafdi betur & stakk af.. (í alvoru) Synti m/ morgaesum!!
taer eru SVO saetar & klunnalegar.. fae ekki nóg af teim svo ad
ég horfdi fraegu heimildamyndina, líf kóngamorgaesarinnar, í
morgun!! Héldum ad hann Magnus hefdi verid bitinn af Hákarli
tví hann oskradi svo mikid tegar hann var stunginn af marglyttu!!
Tessir karlar hafa ekki jafn sterkann sársaukatroskuld og vid
kvenfólkid tví ekki heyrdist múkk í minni tegar marglyttan réðst á
mig.. Svo var bodist til ad pissa á mig eftir á!! á víst ad vera
besta medalid, en tar sem tetta var eyrad á mér og allur hálsinn
ákv. ég ad sleppa besta medalinu í tetta sinn og setja bara
sítrónusafa í stadinnn já og svo syntum vid líka med selum
og voru teir ad leika sér allt í kringum okkur & vildu leika
vid okkur en tar sem karl/yfir selurinn er frekar haettulegur
(verri en Hákarl) vildum vid nú ekki eiga tad á haettu ad hann
kaemi & vaeri eitthvad ad abbast uppá okkur tví vid vorum ad
leika vid konurnar hans & born.. Var tví bara teknar myndir í
stadinn Svo sáum vid huga skjaldböku sem var yfir 150
ára gomul, en taer verda um 170-180 ára, og 500 kg.. (taer geta
ekki synt) en svo eru adrar sem geta synt og var geggjad gaman ad
fylgjast med teim í kafi, taer eru held ég undir 100kg & allt
odruvísi í vextinum.. skjoldurinn er ekki samvaxinn hjá teim,
heldur eru bara med hlíf á bakinu!!!
Svo var nú skellt sér á djammid sídasta kvoldid í baenum áður en
haldid vaeri frá Galapagos.. Missti af morgunmat í bátnum 5:30 tví
taxinn haetti ad sigla kl.3.. Fékk einhvern gaur til ad skutlast á
speed bátnum sínum á naestu eyju tar sem sídsta skodunarferdin var.
tadan var svo tekin bíll & rúta útá flugvoll..
Leidin Heim... Skellt var sér á flugvollinn
og var eitthvad verid ad slaepast tegar ég heyri nafnid mitt kallad
upp í kallkerfinu.. (mjog fyndid ad heyra fólk reyna ad bera fram
Gudmundsdóttir.. hehe) jamm Interpol vildi fá ad skoda í toskuna
mína.. HAA INTERPOL hva!! jaeja ég vissi svo sem ad ég hefdi ekkert
ad fela svo vid Mási eltum kallinn og tegar í bakgardinn var komid,
kom tad uppá ad tetta var bakpokinn hans magnúsar, tví allar
toskurnar voru víst á mínu nafni(ég átti meirihlutann af toskunum:/
) Var hann med pókersettid i bakpkanum og héldu teir ad tad
vaeri eitthvad haettulegt/sprengilegt í tví.. En tetta reddadist
allt svo vid stigum vandraedalaust til bords
jaeja svo var millilent í Guivielle(eda eitthvad tanig) í Ecuador,
tadan var farid til San Jose í Costa Rica, bedid á vellinum í
nokkra tíma, seinkun í gangi, og farid svo aftur uppí somu vel sem
búid var bara ad trífa.. tá tók vid flug til new York.. Var búid ad
ákv. ad henda toskunum í geymslu, fara á hostel í manhattan og fá
sér almennnilegan lúr ádur farid yrdi í búdir.. tegar til NY var
komid um 2 um nóttina var geymslan full svo vid urdum ad bída á
vellinum tar til einhverjir kaemu ad saekja toskurnar sínar svo tad
yrdi pláss fyrir okkar!! bidum vid um 11/2 -2 klst og í
stadinn fyrir ad borga fyrir hostel í nokkra tíma var ákv. ad
leggja sig bara á gólfinu á flugvellinum.. var tad ekkert svaka
taegilegt en betra en margt annad tó.. hef sofid í rúmi em var
hardara heldur en gólfid!! Svo var bara raes & sjæn um
kl.8 og farid til manhattan tar sem spredad var peningum sem ekki
eru til..t.e. VISA var straujad til Helv... magnúsi til
ómaeldrar ánaegju dró ég hann med mér i allar búdir.. HM- ZARA,
Victori Secret, sem var med útsolu!! En lofadi ég ad stoppa stutt
tar og naerfatamátun tekur sko ekki stuttan tíma svo tad var bara
labbadur einn hringur & skodad.. jamm og keypti ég mer
svaka flotta og nýja LUMEX myndavel... (ekki í victoria Secret!!)
Er ég gedveikt ánaegd med hana og stolt.. fyrsta Digital myndavelin
min!!
En já tad var farid dvo á JFK til ad checka inn flugid til
Íslands tar voru einhverjar gellur (vona ad taer komist
ekki yfir tessa bloggsídu!!) Og taer voru SVO ad drepa mig úr
gelgjustaelum.. ARRG.. "ohh tad eru íslendingar hér.. hef ekki hitt
íslendinga svo lengi.. get ekki talad íslensku.. OSFRV" Eru sko
búnar ad vera skiptinemar í brazilíu og einhverstadar í !! mánudi!!
Ok mér gaeti bara hreinlega ekki verid meira saman.. vertu rispud
plata í 5 klst.. en bara ekki nálaegt mér vinsamlega!! Svo
gat ein teirra ekki haett ad tala um feitt fólk og ad módurfjolsk.
hennar vaeri 'OGEDISLEGA feit en hún og systkinu hennar geggjad
gronn.. Fósturpabbi hennar var svo Ógedislega feitur ad hann gat
ekki setid á normal stól.. hvernig gat hann tá átt 4 born ef hann
gat ekki sed tippid á sér os.frv!! Arrg Get a life you bitch or
grow up!! Ef tessar gellur hefdu setid einhverstadar
nálaegt mér í velinni, tá vaaeri ég ekki hér til ad skrifa tennan
pistill, Tví ef ég hefdi ekki dáid úr pirringi í velinni hefdi ég
farid inná wc-id og reynt ad drepa mig!! Er ég of hardord??
Jaeja allavega tá var seinkunn á fluginu frá NY í 3 1/2 tíma og
turfti ég ad hlusta á tetta bull mesta allan tímann tá líka!! Held
ég sé komin med nokkur grá hár á hausinn á mér eftir tetta allt
raus..
Allaega tá komst ég lifandi á íslenska módurjord og tyndi ég
hengirúminu mínu, eina ferdina enn.. er búin ad týna tveim sl. 6
mánudi... var mín ad fara tilkynna tyndan farangur tegar ég sá eina
flugfreyjuna vera ad burdast med tad eitthvad.. var tad ekki sett
med vognunum og kerrunum inn í stadinn fyrir toskurnar svo ad tad
komst nú í rettar hendur á rettum tíma..
Svo nú er bara madur komin heim.. jaa allavega til Rognu
systir.. búin ad setja í eina vél set í adra á morgun.. tad liggur
ekkert á.. tarf ad koma reglu á dótid mitt & bída eftir
20 kg. pakkanum frá Lima.. vona hann komi fljótt svo ég muni hvad
ég fékk handa hverjum..
heyri í ykkur seinna.. tarf ad finna út hver forgangsrodin mín
er á klakanum fyrstu daganna
kv. anna kata
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|